
Friðrik v og Jói Fel
Reyksoðið kindainnanlæri með bláberjadressingu
Fyrir 4 til 6 manns

180 til 200 gr kindainnanlærisvöðvi
1 tsk sjávarsalt
1 msk þurrkaðar villar norðlenskar kryddjurtir
Hvítur pipar
Slatti af þurrkuðu spreki og berjalyngi eða 2 msk Reyksuðusag
( í reyksuðubox sem fæst í veiðibúðum)
Aðferð; Nuddið salti, pipar og jurtunum í vöðvann látið standa í 1 klst og reyksjóðið í 10 til 20 mín í reyksuðuboxi eða á voc pönnu. Athugið hitið ekki mikið eftir að kjötið er kominn í boxið. Takið úr boxinu og látið standa í 2 til 3tíma í kæli áður en kjötið er skorið í þunnar sneiðar. Ath það er í lagi að geyma vöðvann lengur og jafnvel frysta.
Bláberja dressing
½ dl frosin íslensk bláber
1 msk hunang
1 msk rauðvínsedik eða balsamico
½ dl ólífuolía
Aðferð; Allt maukað saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
Hægeldað nauta prime ribs að hætti FRIÐRIKS V

1 stk sérvalin prime ribs vöðvi (2 til 3kg)
½ dl góð ólífuolía
1 góður dúskur blóðberg ferskt
1 góður dúskur rósmarin ferskt
nýmalaður svartur pipar
flögusalt salt
2 stk laukur
4 gulrætur
1 hvítlaukur
Aðferð; hreinsið vöðvann og nuddið hann vel með salti og nýmöluðum pipar bindið upp vöðvann með góðu garni,brúnið vöðvann á pönnu látið standa í smá stund og baðið í olíunni skerið grænmetið gróft og raðið í góða djúpa ofnskúffu setjið vöðvann ofan á grænmetið og raðið kryddjurtunum yfir. Setjið í 90°c heitan ofn í 3-4 klukkutíma snúið vöðvanum einu sinni á klukkutíma takið vöðvann út látið standa í 20 mín áður en hann er sneiddur berið fram með sigtuðu soðinu úr skúffuni, góðum kartöflum, vænum sítrónubát, fersku salati og góðri ólífuolíu
Hátíðar kartöflur
4 bökunar kartöflur ísl
10 möndlukartöflur ísl
50 gr smjör
½ dl rjómi hitaður upp að suðu
Salt
Múskat
Andarfita til steikingar
2 dl grænmetissoð
Skrælið bökunar kartöflurnar og skerið til t.d. í ferning eða sívalning kúlið gat í miðjuna og brúnið í andarfitunni setjið í ofnskúffu og hellið soðinu yfir hyljið með álpappír og bakið í 165°c heitum ofni í 25 til 30 mín. Sjóðið möndlukartöflurnar í söltu vatni við væga suðu ath. þær eiga til að springa
Takið af hitanum og afhýðið pressið í gegnum kartöflusigti og hrærið upp í hrærivél með volgum rjómanum, smjöri, salti og örl. múskati.
Eyfirskt skyramisu
1 ½ dl sólberjasulta
1 ½ dl sólber
½ dl portvín
3 msk hrásykur
1 pakki puttakex
1 egg
100 gr sykur
400 gr óhrært skyr
3 dl þeyttur rjómi
1 dl Súkkulaðispænir
Aðferð
Berjablanda:Sultan, sólberin,portvínið og hrásykurinn eru soðin saman. Raðið puttakexinu í stóra víða skál hellið berjamaukinu yfir þegar berin eru sprunginn og sykurinn er uppleystur, látið blandast vel meðan skyrblandan er gerð.
Skyrið:Þeytið eggin og sykurinn saman þangað til er loftkennt og ljóst, blandið létt saman við óhrærða skyrið í hrærivélinni, að lokum hrærið varlega með sleif þeyttum rjómanum saman við skyrið.
Hellið því síðan yfir berjablönduna, að síðustu stráið súkkulaðispæninum yfir.
Gott er að láta standa í 2 -3 klst. áður en borið er fram.