Hvalkjöt - forréttir
Hrefna í soja
Hrár hvalur með sojasósu og wasapi
Kjötið er skorið niður í þunnar sneiðar og raðað upp á disk.
Sojasósan er sett í skál, smá wasapi er sett saman við og hrært vel saman.
Hrefna með teriaki sósu.
Kjötið er skorið niður í þunnar sneiðar og rúllað upp, sett á disk og ferskt engifer er rifið yfir.
Saxið niður hvítlauk, engifer og chilli mjög smátt. Setjið sósuna í skál ásamt smá af sojasósu. Setjið kryddið saman við og látið standa í smá stund.
Hrefnu carpaccio
Skerið kjötið niður í þunnar sneiðar og raðið upp á disk. Setjið ólífuolíu yfir, smá af grófu salti og svartan pipar. Setjið rúkkóla salat á miðjuna á kjötið, létt brúnið furuhnetur og setjið yfir. Skerið niður góðann ost t.d höfðingja og raðið yfir.
Hrefnu rúlla með brieosti
Skerið kjötið niður í þunnar sneiðar og stekið við mjög háan hita í c.a 15 sek, bara á annari hliðinni. Setjið kjötið á borðið og látið kólna. Setjið rúkkóla blað ofaná ásamt brieosti, salt og pipar. Rúllið kjötinu upp og setjið á disk. Lagið sósu með sýrðum rjóma einu til tveimur hvítlauksgeirum. 1 tsk af sinepi, sítrónu safa og salt og pipar.
Hvalkjöt - aðalréttur
Eitt stykki af hvalasteik, veltið uppúr olíu og kryddið vel með salt og pipar. Brúnið smjöt á pönnu og látið aðeins brúnast. Steikið kjötið á öllum hliðum mjög vel og takið til hliðar. Setjið kjötið inn í 200° heitann ofninn og eldið í c.a 10 mín og allt uppí 15 mín.
Sjóðið kartöflur og kælið, steikið uppúr smjöri þar til þær aðeins brúnast.
Gráðostasósa
Steikið 1 pakka af sveppum á sömu pönnu og kjötið var steikt á, bætið við olífuolíu og steikið vel. Setjið einn pela af rjóma og látið suðuna koma upp. Setjið c.a 1 msk af gráðosti í sósuna, kryddið með salt og pipar.
Skyrdesert
500gr hreint skyr
50- 100gr hrásykur
1 stk egg
dass vanilla
ber og rjómi með, lime rifið yfir
Hræra allt í höndunum með trésleif, hafa skyrir mjög kallt ásamt eggj, hræra lítið saman og setja upp á disk með berjum og rjóma. Rífið lime yfir í restina