.

                        Mynd með frétt
                          Joi Fel

                 Silungasalat

     

Reykt bleikja
Sýrður rjómi
Majones
Egg
Aromat
Ananas
Eggin eru soðin og kæld. Stappið eggin með gafli, rífið fiskinn niður í litla bita. Blandið saman sýrða rjómanum og majonesinu ásamt aromati, skerið ananasinn og blandið svo öllu vel saman. Setjið góða sneið af fiski á ristað brauð og svo salatið þar yfir.

       Lambalæri kryddað





Kjötið
1 stk lambalæri c.a 2 til 2,5 kg
1 búnnt garðablóðberg
2 greinar rósmarin
Vel af Salt og pipar

Hreinsið lærið ef þið viljið. Saxið jurtirnar niður mjög smátt og kryddið með salt og pipar. Veltið kjötinu uppúr olíu, setjið svo kryddið á allt kjötið. Best er að láta kryddið lyggja á kjötinu í nokkra tíma eða yfir sólarhring, en þarf þó ekki nauðsinlega.
Setjið kjötið í ofninn við 120° og eldið í 90 mín. Takið þá kjötið út og stillið ofninn á grill. Látið kjötið standa í c.a 15 mín. Setjið kjötið aftur inn í ofninn undir grillið í c.a 10 mín, en þá ætti að vera komin góð húð á steikina.

Sósan
1 pakki flúðasveppir
½ l rjómi
1 pakki piparostur rifinn
1 msk kjötkraftur
Salt og pipar
2 msk púrtvín eða koníak ef vill

Rauðkálið
1 stk rauðkálshaus
1 grænt epli
2 msk smjör
2 dl rauðvínsedik
200 gr sykur
1dl sólberjasaft
1 msk rifsberjasulta
1dl vatn
Salt
Eplin og rauðkálið er skorið niður, þetta er sett í pott ásamt smjöri og blandað vel saman. Þá er restinni blandað saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ - 2 tíma.
Hræra þarf regglulega í pottinum,

Brúnaðar
1 kg nýjar íslenskar kartöflur
150gr sykur
2 msk smjör
1 dl rjómi
Sjóðið kartöflurnar og takið til hliðar. Brúnið sykurinn á víðri pönnu, setjið þá smjörið saman við og látið leysast upp. Hellið þá rjómanum sman við og lækkið hitann, setjið þá kartöflurnar saman við.

                         Lime epli


3 stk gul epli
1 stk lime
50gr smjör
100gr hrásykur
Skrælið eplin og kjarnhreinsið, skreið niður í bita. Bræðið smjörið á pönnu og veltið eplunum uppúr smjörinu. Stráið sykrinum yfir pelin og láið bráðna í smjörinu. Rífið börkinn yfir eplin ásamt safanum, berið fram þeyttum rjóma

Kókoshringur

200gr     smjör

4 stk      egg

200gr     sykur

1 tsk      vanilludropar

100gr     hveiti

100gr     kartöflumjöl

1 tsk      lyftiduft

125 gr    kókosmjöl

 

Toppur

200gr     súkkulaði 52%

2 msk    smjör

c.a 2 msk kókosmjöl

 

byrjið á því að bræða smjörið. Þeytið saman sykur og eggin alveg í topp sigtið hveiti, kartöflumjölið og lyftiduftið saman við þeytinguna og blandið varlega saman ásamt smjörinu. Setjið kókosmjölið saman við og vinnið rólega saman. Setjið deigið í 26 c.m form og bakið við 180° í 50 mín.

Bræðið súkkulaðið og blandið smjörinu saman við, hrærið þar til fallegur glans er kominn á súkkulaðið. Setjið kremið yfir kökuna og setjið kókosmjöl yfir.

 




 Bröns að hætti Jóa Fel