.

.                                            Mynd með frétt
                                  Joi fel

                            Haframjöls skonsur


155gr hveiti
90gr haframjöl
60gr hrásykur
1 msk lyftiduft
1 tsk  kanill
½ tsk salt
90gr smjör
160ml mjólk

Toppur
2 tsk mjólk
2 msk haframjöl
1 msk hrásykur
½ tsk kanill

Blandið þurefnum saman í skál og látið smjörið vinnast rólega saman við. Setjið þá mjólkina saman við og vinnið rólega í gott deig. Setjið deigið á borð og mótið hring c.a 20 c.m.

Toppur: setjið mjólkina yfir deigið og sáldrið haframjöli yfir, blandið saman sykur og kanil og sáldrið yfir. Skerið niður í átta bita og setjið á bökunnarplötu, bakið við 220° í c.a 15 mín.

Smyrja þær t.d með káli, osti og grænmeti

Flatbrauð


75gr hveiti
180gr heilhveiti
1 tsk salt
1 msk smjör
145 ml vatn

Blandið öllu saman í hrærivélaskál og við með krók rólega saman þar til gott deig er komið í c.a 3 mín. Setjið deigið á borðið og látið standa í c.a 30 mín. Skerið deigið niður í c.a 7-8 kúlur og fletjið mjög þunnt út. Bakið deigið á sjóðandi heitri pönnu í c.a eina mín á hvorri hlið.

Smyrja með smjöri, setja ost og skinku og rúlla upp, gott í nesti í skólann

Litlar kjötbollur


1 pakki nautahakk
1 lítill poki af snakki
1 stk egg
1 msk hveiti
Salt og pipar

Blandið öllu saman með höndunum í skál þar til all er komið vel saman. Búið til litlar kjötbollur með höndunum og steikið á pönnu þar til fallega brúnar.

Berið fram með tómatsósu og sinepi og einum litlum pakka af snakki.

Hakk og spagetti með spældu eggi



Spagetti soðið eins og stendur á pakkningu

1 pakki Nautahakk
Salt og pipar
1 glas af Vatni
1 msk Kjötkraftur
4-5 msk Tómatsósa
2-3 msk Pizzasósa

Steikið kjötið og kryddið með salt og pipar. Þegar kjötið er allt orðið brúnt er vatnið sett saman við ásamt kjötkrafti, tómatsósu og pizzasósunni, sjóðið rólega í c.a 5-7 mín við vægan hita.

Setjið spaghetti á disk og kjötið þar yfir

Spælíð eggið á pönnu og setjið yfir kjötið og spaghettiið.

 

 

 

 




 Bröns að hætti Jóa Fel