340ml bjór eða pilsner
1 msk hunang
5g pressuger
400gr hveiti
100gr rúgmjöl
100gr heilhveiti
1 ½ tsk salt
20gr smjör
Setjið bjórinn, hunangið og pressugerið í skálina, gott er að leysa gerið upp í vökvanum (ekki nauðsinlegt) setjið þá restina saman við og vinnið rólega saman með krók í 2 mín. Vinnið svo á miðjuhraða í c.a 5 mín. Setjið deigið á borðið og mótið kúlu, setjið hveiti í skál og leggið deigið þar ofnaí. Setjið rakann klút yfir og setjið í kæli í c.a 18-24 tíma.
Takið deigið úr kæli og látið standa í c.a 30 mín. Mótið þá deigið létt í kúlu og láið hefast á bökunnarplötu í c.a 2 tíma. Setjið mjöl yfir deigið og skerið tígla í, setjið inní 230° heitann ofninn og úðið vatni um leið í ofninn. Lækkið hitann niður í 210° og bakið í c.a 35 mín eða þar til fallegur litur er kominn á brauðið.
200 g lúða eða annar fiskur
100 g lax
50 g rækjur
50 g hörpuskel
2 rif hvítlaukur
1 laukur
2 msk smjör
3 gulrætur
3 msk engifer
1 msk grænt karrý
1 smátt chilli
1 tsk túrmerik
1 dós kókosmjólk
1½ l fisksoð
3 dl hvítvín
Saffranþræðir
svartur pipar og salt
steinselja í skraut
Aðferð:
Laukur og hvítlaukur eru brúnaðir í smjörinu þar til laukurinn er orðin meyr. Bætið þá engiferi og gulrótum út í og mallið í smástund. Þá er karrý, chilli og túrmeriki sáldrað yfir.
Víninu og fisksoðinu er hellt yfir ásamt kókosmjólkinni og soðið í u.þ.b. tuttugu mínútur við væga suðu. Súpan smökkuð til með saffran, salti og pipar. Hreinsið sinina af hörpuskelfiskinum og skerið í bita ásamt lúðunni og laxinum. Setjið fiskinn saman við súpuna og sjóðið í c.a 5 mín. Setjið í skál og setjið steinselju yfir.
c.a 3 L vatn
2.5 kg kjöt á beini
400gr rófur
400gr kartöflur
200gr gulrætur
40gr hrísgrjón
1 stk lítill laukur
c.a 5 c.m púrrulaukur
c.a 5 msk súpujurtir
c.a 2 msk salt
svartur pipar
setjið vatnið í pottinn, skerið kjötið niður í bita og fituhreinsið ef þið viljið. Setjið kjötið í pottinn og látið suðuna koma upp. Fleytið mest allann soran ofan af kjötinu og látið suðuna koma upp. Skerið niður grænmetið niður eins smátt og þið viljið. Setjið svo allt saman í pottinn og sjóðið í c.a 60 mín frá því kjötið fór í pottinn.