Allar uppskriftir má sjá í nýju
"Brauð og kökubók Hagkaups"
skorpumikið rúgmjölsbrauð bls 188
Fordei
200gr hveiti
50gr rúgmjöl
5gr ferskur ger
180ml vatn
Myljið gerið saman við mjölið með fingrunum. Blandið svo öllu saman og vinnið rólega í 2 mín. Vinnið deigið svo á miðjuhraða í 4 mín. Setjið deigið í víða skál, sáldrið rúgmjöli yfir deigið og setjið í kæli í c.a 18-24 tíma. Áður er fordeigið er notað þarf það að ná stofuhita, (c.a 30 mín á borðinu.)
Deigið
500gr hveiti
100gr rúgmjöl
7gr ferskur ger
20 gr salt
400gr vatn
Setjið allt saman í hrærivélaskál með króknum. Setjið fordeigið saman við og vinnið rólega í 2 mín. Vinnið svo deigið á miðjuhraða í c.a 4-5 mín. Deigið er frekar blaut í sér, setjið deigið á borðið og hnoðið í höndunum í c.a 1 mín. Setjið deigið í skál og látið hefast í c.a 1 klst. Takið deigið í tvennt og sláið upp í tvær kúlur, passið að slá brauðinu ekki mjög fast upp. Setjið deigið á bökunnarplötu og látið hefast undir rökum klút í c.a 1 klst. Sáldrið rúgmjöli yfir deigið og skerið tígla í deigið. Stillið ofninn á 250°. Setjið brauðið í ofninn og spreyjið vatni í ofninn um leið. Lækkið ofnin niður í 220° . Bakið brauðið í c.a 35 mín. Þetta brauð má bakast frekar mikið til að fá góða skorpu.
Súkkulaði kaka með sýrðum rjóma bls. 106
botn
75gr súkkulaði
60gr vatn
150gr hveiti
½ msk kakó
½ tsk lyftiduft
½ tsk matarsóti
1/3 tsk salt
115gr smjör
100gr sykur
75gr púðursykur
1 stk egg
1 stk eggjarauða
1 tsk vanilludropar
100gr sýrður rjómi
Krem
80gr súkkulaði
90gr smjör
2 tsk vanilludropar
700gr flórsykur
1 ½ dl mjólk
botn
Bræðið súkkulaðið með vatninu yfir vatnsbaði, hrærið og blandið vel saman, takið svo af hitanum. Setjið saman hveitið, kakó, lyftiduft, matarsóta og saltið. Vinnið saman smjörið og sykurinn þar til létt og ljóst. Setjið eggin saman við eitt í einu og vinnið vel á milli. Setjið þá brætt súkkulaðið saman við og vinnið saman. Setjið þá þurefnin og sýrða rjómann saman við og vinnið í gott deig. Setjið deigið í 22 c.m form Og bakið við 180° í c.a 35 mín og kælið.
Krem
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og takið af hitanum. Vinnið smjörið létt með 100gr af flórsykri c.a 3 mín. Setjið þá súkkulaðið og vanilluna saman við ásamt mjólkinni, vinnið rólega saman. Setjið svo restina af flórsykrinum saman við og vinnið í öðrum gír þar til létt og ljóst. Setjið kremið yfir kalda kökuna.
Bananabrauð bls 163
260gr hveiti
260gr heilhveiti
30gr lyftiduft
40gr hrásykur
10gr salt
250gr mjólk
250gr AB mjólk eða súrmjólk
2 stk þroskaðir bananar
Setjið allt saman nema banana í skál og hrærið vel saman með trésleif. Þegar deigið er komið vel saman eru stappaðir bananarnir settir saman við og unnið lítilega saman. Setjið deigið í stórt form og bakið ið 180° í c.a 50 mín
Flatkökur bls 207
150gr hveiti
150gr heilhveiti
150gr rúgmjöl
100gr sykur
3 tsk liftiduft
½ tsk salt
400gr heit mjólk
Blandið öllum þurefnunum saman, setjið heita mjólkina saman við og hrærið í gott deig. Fletjið deigið mjög þunnt út og skerið niður í hring, pikkið með gafli hér og þar. Bakið deigið á mjög heitri pönnu þar til góður litur er kominn, snúið þá við og bakið hinumeginn þar til fallegur litur er kominn.
Spreyjið kökurnar með vatni þegar búið er að baka þær og setjið undir rakann klút.