.

 

                                  Mynd með frétt

                           Jói Fel

 

                        Nanbrauð


500gr hveiti
1 ½ tsk salt
20gr pressuger
250ml vatn
80gr jógúrt
1 tsk cummin

Setjið allt saman í hrærivél og vinnið með krók rólega í 2 mín og á miðjuhraða í 5 mín. Látið deigið standa undir rökum klút í 1 klst. Skerið svo deigið niður í litla bita og rúllið út frekar þunnt. Setjið smá smjör og olíu á pönnu og steikið deigið á báðum hliðum þar til fallegur litur er kominn á brauðið.

              Fiskigratín



200 gr lax
200gr góður stífur fiskur
200gr góður fiskur
1 box sveppir
½ rauð paprika
½ hvítur laukur
3-4 stk vorlaukur
2-3 stk hvítlauksgeirar
½ haus sperkilkál
Safi af hálfri sítrónu

Hollandersósa
3 skt eggjarauður
250gr smjör
Safi af hálfri sítrónu
Salt og pipar

Fiskurinn er létt steiktur og svo rifinn niður í eldfast mót. Grænmetið er steikt og sett yfir fiskinn.

Kreistið hálfa sítrónu yfir allt saman kryddið létt með salt og pipar.

Þeytið eggarauðurnar, bræðið smjörið og setjið saman við í nokkrum skömmtum mjög varlega (sama og bernes sósa) kryddið með sítrónusafa, salt og pipar. Setjið sósuna yfir fiskinn og grænmetið. Setjið inní 200°heitann ofninn í 10 mín.

        Plokkfiskur frá Úlfari á Þremur frökkum


1 kg þorskur
½ L mjólk
½ laukur
½ tsk Salt
½ tsk pipar
1 msk karrý
1 msk kjötkraftur
2 msk smjörbolla
2 msk smjör

Hollandersósa með 1 tsk af þurkuðu estragoni og 1 tsk kjötkrafti

Sjóðið þorskinn í c.a 5 mín og látið leka vel af honum. Hitið mjólkina að suðu, saxið laukinn niður og setjið saman við mjólkina ásamt kjötkrafti, salti, pipar og karrý. Hrærið vel saman setjið smjörbolluna saman við og hrærið vel ( á að vera mjög þykk). Hrærið svo fiskinn saman við með pískara, setjið í restina smjörið saman við og látið bráðna saman við. Setjið skornar kartöflurnar saman við. Setjið í eldfast mót. Lagið hollandersósuna og setjið yfir ásamt rifnum osti, setjið undir grillið í ofninum og látið aðeins brúnast, ekki of mikið.




 Bröns að hætti Jóa Fel