joi fel
Baguette
500ml vatn
720gr hveiti
20gr pressuger
17gr salt
Byrjið á því að vinna vatn og hveiti saman rólega í 1 mínútu, vinnið svo á miðjuhraða í 4 mín. Setjið þá gerið saman við og vinnið áfram á miðjuhraða í 4 mín. Setjið þá saltið saman við og vinnið áfram í 4 mín á miðjuhraða. Mótið deigið í kúlu og látið hefast í um 45 mín undir rökum klút. Skerið deigið niður í fjóra hluta. Mótið þá deigið í c.a 20 c.m lengu og látið aftur hefast undir rökum klút í c.a 30 mín. Mótið þá deigið enn lengra og látið hefast undir rökum klút í c. a30 mín. Skerið í deigið og setjið inní 250° heitann ofninn og lækkið niður í 240° bakið í c.a 15 mín eða þar til fallegur litur er kominn á brauðið.
Lambaforréttir
Lamba fille skorið í 1 cm sneiðar með fitu, kryddað með lamb islandia og oregano frá pottagöldrum. Brúnað létt á pönnu og Eldað svo í ofni við 160° í c.a 25 mín.
Fituhreinsað Fille rúllað uppúr sinepi rósmarin og salti og pipar. Steikt og haft hrátt í miðjunni. Skorið niður í þunnar sneiðar.
Reykt lamba innanlæri, skorið niður í þunnar sneiðar.
Sósur
½ l hreint jógúrt
hálf lítil flaska af sveet chilli sósu
c.a 7 c.m af gúrku sem er skorin niður í litla bita.
Blandið öllu saman og látið aðeins standa.
1 dós Sýrður rjómi
1-2 hvítlauksrif
lamb islandia
oregano
1 msk hunang
½ sítróna
salt og pipar
Blandið öllu vel saman og látið standa.
c.a 200gr bláber
3-4 jarðaber
safi úr hálfri sítrónu
c.a 1 msk sykur
1 msk balsamic
1 msk ólífuolíu
All sett í mortel og unnið rólega saman, hafið sósuna kekkjótta
Ítalskar kjötbollur frá Leif á La Primavera
1 krukka Tómatar maukaðir“ polpa di pomodoro“
½ stk selleri
1 stk gulrót
2 skt hvítlaukur
½ stk laukur
Salt og pipar
Ferskt basil
Saxið allt grænmetið niður mjög smátt og steikið í c.a 10 mín við lágan hita. Setjið tómatana saman við og kryddið með salt og pipar, setjið í restina ferska basiliku.
1 pakki nautahakk
1 stk egg
2 msk hveiti (eða brauðrasp)
2 c.m chilli
5 msk parmesan
5 msk steinselja
Börkur af hálfri sítónu
Blandið öllu vel saman og búið til litlar kjötbollur. Steikið uppúr olíu í c.a 10 mín.
Sjóðið pastað á meðan. Setjið sósuna útá pönnuna ásamt pastanu og hrærið saman. Setjið á disk, rífið parmesan yfir ásamt sítrónu safa.