.

 

 

                            Mynd með frétt
                             jói fel

Forréttur : Kjúklinga snitsel

 

Kjúklingalundir

Dijon sinep

Steinselja

Egg

Brauðrasp

Salt og pipar

Isio olía til steikingar

 

Búið til brauðrasp úr gömlu brauði og kryddið með salt og pipar. Lemjið kjúklinginn niður á milli tveggja plastpoka. Smyrjið kjúklinginn með sinepi og kryddið með steinselju. Veltið þá uppúr eggi og dýfið í brauðraspinn. Steikið uppúr mikilli olíu þar til stökkt.

 

 Sósa

1 dós sýrður rjómi

1 msk    dijon sinep

2 stk      hvítlauksgeirar

1 msk    hunang

Safi úr hálfri sítrónu

Salt og pipar

 

Hrærið öllu vel saman og látið aðeins standa.

Setjið salat á disk og raðið kjúklingi yfir, setjið svo sósuna með á diskinn.

 

Aðalréttur lambasteik

 

1 stk      Lamba steik

Ólífuolía

Köd og grill krydd

Salt og pipar

Ferskt rósmarin

 

Veltið kjötinu uppúr olíu, kryddið vel með köd og grill kryddinu, salt og pipar.  Brúnið kjötið vel á pönnu, byrjið á því að brúna fituhliðina, snúið svo við og brúnið létt á kjöthliðinni. Setjið rósmarin yfir kjötið og setjið inní ofn, eldið við 160° í c.a 30 mín. Látið kjötið standa í c.a 10 mín áður en það er skorið.

 

Sósa

1 dós     sýrður rjómi

3 msk    majones

1 stk      hvítlauksgeiri

1 msk    sætt sinep

Hnefa fylli af ferskri basil

1 grein ferskt rósmarin

Salt og pipar

 

Blandið öllu vel saman og látið standa.

 

Meðlæti

 

Sætar kartöflur

Kartöflur

Gulrætur

Sellerirót

Fennel

Hvítlaukur

rósmarin

Salt og pipar

 

Skerið allt niður í litla bita, brúnið létt á pönnu og kryddið með salt og pipar, setjið rósmarin yfir og setjið inn í ofn. Eldið í c.a 30 mín, en það fer eftir því hversu stórir bitarnir eru.

 

Blandað Salat

 

Salatblanda

Rauðlaukur

Fetaostur

balsamic

Olía

 

 

Hnetubar

 Botn

175gr     hveiti

2 mk      flórsykur

115gr     smjör

1 msk    vatn

Vinnið saman í hrærivélaskál þar til deigið verður að dufti. Hnoðið svo í höndunum á borðinu, rúllið deigið út með vel af hveiti undir. Setjið deigið í 24 c.a form, setjið smjörpappír ofaná deigið og fyllið upp með grjónum, blindbakið í 10 mín við 190° hita. Takið þá grjónin frá og bakið áfram í 5 mín.

Fylling

200gr     valhnetur

100gr     heslihnetur

2 stk      egg

50gr       smjör

50gr       hrásykur

80gr       hunang

2 msk    rjómi

Saxið hneturnar gróft niður og setjið yfir deigið, bræðið smjörið og blandið því sman við restina og hrærið vel saman. Hellið yfir hneturnar og bakið við 180° í c.a 25 mín. Kælið og skerið niður, er mjög góð ylvolg með þeyttum rjóma




 Bröns að hætti Jóa Fel