Jói Fel
450gr hveiti
70gr semolinohveiti
15gr ger
10gr salt
50gr ólífuolía
320gr vatn
Ólífuolía
Maldon salt
Fersk rósmarin
Setjið saman hveiti og semolina, brjótið gerið saman við með fingrunum. Setjið vatn og olíu saman við ásamt saltinu. Vinnið deigið rólega saman í 2 mín, vinnið svo deigið á miðjuhraða í c.a 6-7 mín. Deigið á að vera svolítið klístrað. Sláið deiginu upp í kúlu og látið standa undir rökum klút í 90 mín. Mótið svo deigið á plötu og hefið aftur í c.a 20 -30 mín, en það fer eftir því hversu stórt brauðið er. Setjið olíu, salt og rósmarin á deigið og bakið við 230° í c.a 20 mín.
1 pakki kjúklinga lundir
Parmesan
brauðteningar
1 haus kínakál (romaine salat)
Sósa
3msk majones
3 msk sýrður rjómi
1 msk dijon sinep
2 stk hvítlauksgeirar
3-4 stk ansjósuflök
Safi úr einni sítrónu
Salt og pipar
Steikið kjúklinginn á pönnu og takið til hliðar.
Saxið hvítlaukinn og ansjósuflökin mjög smátt og blandið öllu vel saman. Skerið salatið niður í bita og blandið rúmlega helmingi af sósunni saman við, setjið salat á disk. Setjið kjúklinginn svo yfir salatið. Rífið parmesanostinn yfir og dreifið brauðteningunum á diskinn. Berið restina af sósunni fram með.
Kjúklingaleggir, kryddaðir með köd og grill. Eldið kjúklinginn í c.a 60 til 70 mín við 230° mín eða þar til hann er vel eldaður og losnar vel frá beinunum. Gott er að hafa hann á grind.
Salat
Blandað íslenskt salat
Ferskt basil
rauðlaukur
Konfekttómatar
Ristaðar furuhnetur
Fetaostur í kryddolíu
Balsamic edik
ólífuolía
60gr smjör
170gr sykur
½ tsk vanilludropar
1 stk egg
125ml mjólk
225gr hveiti
2 tsk lyftiduft
½ tsk salt
150gr bláber
Toppur
120gr sykur
70gr hveiti
½ tsk kanill
60gr smjör
Vinnið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst setjið eggið samanvið og vinnið vel saman. Setjið þá mjólkina saman við ásamt þurefnum og vinnið í gott deig. Setjið þá bláberin saman við með sleif, setjið deigið í c.a 24 c.m form.
Toppur
Setjið allt saman í skál og hnoðið með höndunum, þetta á að vera þurrt og með smá kökklum, sáldrið þessu yfir kökuna. Bakið við 190° í c.a 45 mín.
Kakan er góð ylvolg með þeyttum róma.