175g smjör
90g sykur
250g hveiti
Vanilla
Hrásykur utan um
Vinnið smjör og sykur vel saman, setjið hveitið saman við og vinnið saman með höndunum. Rúllið deigið út í tvær lengjur og velltið uppúr hrásykri kælið rúllurnar og skerið svo niður í bita, bakið við 160° í c.a 20 mín.
Shortbread
235 gr hveiti
30gr maisenamjöl
Hn.odd salt
185gr smjör
90gr sykur
1 tsk vanilludropar
Vinnið smjör og sykur saman með vanillu, setjið þá þurefni saman við og vinnið rólega saman. Setjið deigið í form og fletjið út. Stingið með gafli hér og þar í deigið og gott er að merkja sneiðar í deigið fyrir bakstur. Bakið við 150° í 60 mín. Skerið svo niður.
1000 g nautakjöt
smjör og olía
2 tsk. Karrí
Salt og pipar
1 stór laukur
400 g ferskir sveppir
2 stk hvítlaukur
2 stk gulrætur
1 gul paprika
1 rauð paprika
1 krukka niðursoðnir tómatar
2 msk tómatpurre
½ - lítri rjómi
1 lítil dós ananas
Skerið kjötið niður í litla bita, brúnið kjötið á pönnu í smjöri og olíu, stráið karídufti yfir ásamt salt og pipar. Skerið grænmetið niður í hæfilega stærð og steikið á pönnu. Allt er sett í stórann pott, blandið þá saman tómat og rjóma. Látið malla við vægan hita þar til kjötið er orðið meyrt, c.a 45 mín. Ananas er sett út í síðast og hitað með. Kryddið í restina með salt og pipar og smakkið til sósuna.
Gott með hrísgrjónum og brauði.
Sósa
200gr 70% súkkulaði
2 dl rjómi
1 msk hunang
1 stk vanillustöng
Rjóminn er hitaður að suðu með hunangi og vanillu, hellið rjómanum yfir súkkulaðið og hrærið rólega saman þar til fallegur glans er kominn.
Núggat
200gr sykur
80gr heslihnetur
Bræðið sykurinn á pönnu, passið að brenna ekki. Setjið hneturnar yfir og veltið þeir uppúr sykrinum. Kælið og brjótið niður.
Bananar
Vanilluís
Þeyttur rjómi
Verði ykkur að góðu