Humar
Risarækja
Hörpudiskur
Fiskurinn er settur á tein og pennslaður með hvítlauksmjöri. Grillað á rifflaðri pönnu.
Sósa
1 msk smjör
1 stk skarlotulaukur
1 dl hvítvín
1 dl fiskisoð
1 dl rjómi
Safran krydd
1 msk smjör
Salt og pipar
Laukurinn er létt steiktur í smjörinu Soð og hvítvín er sett saman við og látið sjóða niður um helming, þá er rjóma bætt við, kryddað með safran, salt og pipar. Í restina er svo smjör hrært saman við, eftir það má sósan ekki sjóða.
1 stk Nautalund, ekki hálsinn
1 pakki Smjördeig
Duxells
700gr sveppir blandaðir
30gr þurkaðir villisveppir
1 stk skarlottulaukur
4 skt hvítlauksgeirar
Garðablóðberg (timjan)
2 msk rjómi
Salt og pipar
Skerið allt mjög smátt niður, steikið sveppina laukinn og hvítlaukinn mjög vel. Kryddið með salt og pipar og stráið blóðberginu yfir . setjið að síðustu rjómann saman við og látið suðuna koma upp, takið til hliðar og kælið
Brúnið kjótið á pönnu og kryddið með salt og pipar, takið til hliðar og kælið. Fletjið deigið út, setjið duxelið yfir deigið og leggið kjötið yfir. Rúllið deiginu þétt upp undan um kjötið, passið að láta sárið snúna niður. Pennslið deigið með eggi.
Stillið ofninn á 200° Setjið kjötið inn og eldið í c.a 25 mín eða þar til deigið er orðið vel bakað.
Látið kjötið standa í c.a 10 mín áður en það er skorið.
Kartöflu teningar steiktir á pönnu og bakaðir með kjötinu.
Rauðvíns Sósa
2 stk skarlottulaukar
2 stk hvítlauksgeirar
4 greinar tímjan
3 sneiðar beikon
1 msk hunang
1 dl balsamic edik
3 dl rauðvín
70gr smjör
Salt og pipar
Steikið saman lauk, hvítlauk, timjan og beikonið. Setjið þá hunang og balsamic saman við og sjóðið niður í síróp, setjið þá rauðvínið samanvið og sjóðið niður um helming. Þá er sósan sigtuð og smjörið sett saman við í þremur skömmtum, passið að sjóða ekki eftir að smjörið er komið saman við. Smakkið svo til með salt og pipar.
260g möndlur
230g flórsykur
4 stk eggjahvítur
Hakkið möndlurnar í möndluduft og blandið saman við flórsykurinn. Stífþeytið hvíturnar og blandið mjög varlega saman við möndlublönduna. Setjið deigið á plötu með teskeiðum og bakið við 180° í c.a 13 mín.
Krem
1 dl vatn
120gr sykur
4 stk eggjarauður
1 ½ msk kakó
260gr smjör
Hitið vatn og sykur að suðu og sjóðið þar til suðan fer að þykkna (116°) þeytið eggjarauðurnar á meðan. Hellið sykursuðunni saman við þeytinguna í mjórii bunu, þeytið svo áfram þar til rauðurnar hafa tvöfaldast. Setjið þá kakó og smjör saman við og vinnið með sleif eða höndunum rólega saman í gott smjörkrem. Setjið kremið yfir kalda botnana og kælið. Hjúpið svo með góðu súkkulaði.
Verði ykkur að góðu!