.

 

                       Mynd með frétt
                                     Jói Fel

                         Villibráða forréttur



T.d Krónhjörtur
Þurkaðir Villisveppir
Einiber
Salt og pipar
Maukið í morteli sveppi og einiber, kryddið með salt og pipar. Veltið kjötinu uppúr kryddinu og steikið við háan hita. Bakið í ofni við 180° í c.a 12 mín en það fer efti því hversu þykk steikin er. Hafið steikina létt steikta eða í c.a 55° í kjarnhita.

Sveppa blanda
c.a 500gr af sveppum
flúðasveppir
Kastaníu sveppir
Shitake sveppir (ef vill)
1 dl Grand marnier
c.a 2 dl Rjómi
Salt og pipar
Steikið sveppina vel , setjið vínið saman við og sjóðið niður í síróp. Setjið þá rjómann saman við og látið sjóða í þykkan lög, kryddið með salt og pipar

Steiktar perur
Pera
Smjör
Hrásykur
Skerið peruna niður í báta og steikið uppúr smjöri, setjið sykurinn saman við og látið leysast upp, brúnið létt.

Skerið kjötið niður í sneiðar, setjið sveppa blöndu á disk og kjötið þar yfir. Setjið þá perurnar yfir kjötið og berið fram.

Fylltar kalkúnabringur

 

Fylling
40gr smjör
200gr sveppir
1 stk laukur
1 stylkur selleri
1 hnefi fersk steinselja
200gr beikon
50gr heslihnetur (saxaðar)
100gr brauðteningar (gamalt brauð)
1 stk epli
300gr rjómaostur
1 msk kalkúnakrydd (pottagaldrar)
Salt og pipar

Fyllingin
Sveppir, laukur og selleri er skorið niður og steikt uppúr smjöri. Beikonið er skorið niður og sett saman við og steikt. Þá er restinni blandað saman við og hrært í góðan graut. Setjið allt í matarvinnsluvél og vinnið létt saman (ekki of mikið, eiga að vera smá bitar)

Aðferð
Skorið er stórt gat á bringuna og fyllingin sett í gatið. Bringan er svo pensluð með smjöri, krydduð með kalkúna kryddi, salt og pipar.
Bringan er sett inní 170° heitan ofn og elduð í c.a 50 mín. ( 1 kg bringa + fylling) gott er að setja grillið á í restina til að fá góða grillaða húð.
Athugið að ef bringan er stærri þarf lengri eldunartíma ( 1.5 kg bringa þarf c.a 70 mín)

Sósa
250gr sveppir
2 dl vatn
2 msk kalkúnakraftur
1 pakki piparostur rifinn
½ l rjómi
Salt og pipar

Eplasalat
1 stk Epli
10 stk Vínber
5 c.m Selleri
2 dl Rjómi þeyttur
Skerið eplið niður í litla bita, skerið seleri í mjög smáa bita, blandið svo öllu saman.

Sætar kartöflur skornar í lengjur og steiktar uppúr isio olíu, bakaðar við 170° í c.a 30 mín

Ostakaka


150gr hafrakex
20gr sykur
90gr smjör

4 stk matarlímsblöð
300gr rjómaostur
70gr sykur
1 tsk vanilludropar
200gr rjómi, þeyttur
70gr appelsínu súkkulaði frá Nóa Sírius (dökkt)

Botn
Kexið er mulið smátt, smjörið er brætt og blandað saman við ásamt sykri. Þrýstið botninum vel niður í formið.

Fylling
Setjið matarlímið í bleyti og leysið svo upp í 1 msk af vatni. Vinnið rjómaostinn mjúkann með sykrinum og vanillunni. Setjið matarlímið saman við og vinnið rólega. Setjið létt þeyttann rjómann saman við, þegar rjóminn er kominn vel saman við ostinn er smátt skorið súkkulaðið sett saman við og unnið mjög lítið. Setjið á botninn og látið standa í c.a 3 tíma eða allt að sólarhring.

Hjúpur
4 msk sykur
Safi úr einni appelsínu
Börkur af einni appelsínu
Setjið allt í pott og látið suðuna koma upp. Sjíðið í c.a 2 mín og setjið svo yfir kalda kökuna




 Bröns að hætti Jóa Fel