Þáttur 1. Fimmtudagurinn 09-06 2011
09. júní 2011
Tapas forréttir
Skerið niður sneiðar af ciabatta brauði (má líka vera snittubrauð). Setjið brauðið á grillið og ristið létt. Setjið smá ólífuolíu yfir brauðið (þeir sem vilja þá er mjög gott strjúka hvítlauk yfir brauðið)
Lítill nautakjötsbiti (helst lund) grillaður frekar lítið kryddið með salt og pipar. Sneiðið kjötið frekar þunnt og setjið á grillað brauðið, setjið svo gráðostinn yfir og smá af sultu.
Hörpuskel (eitt stk á brauð). Kryddað með hvítlauk, engifer og chilli, grillið við háann hita. Kælið, skerið svo í tvennt og sett á grillað brauð með dass af chilli sósu
Setjið camenbert ost í álpappír og pakkið vel inn. Setjið ostinn á efrihillu á grillinu og eldið i c.a 20 mín, látið ostinn standa aðeins áður en hann er skorinn niður og settur á brauðið ásamt sultu og einu laufi af ferskri basilikku.
Setjið gott kjötálegg á brauðið, væna sneiðar af ferskum parmesanosti og ferskum basillaufum.
Barbecue sósa
- 2 msk olía
- 1 stk lítill laukur
- 4 stk hvítlauksgeirar
- ½ tsk chilli flögur
- ½ msk papriku krydd
- 1 msk reykt papriku krydd
- 370gr tómatsósa
- 60ml cider vinegar
- 80gr púðursykur
- 2 msk dijonsinep
- 80ml worchestersósa
- 50ml vatn
Saxið laukinn og hvítlaukinn mjög smátt og létt hitið á pönnu með olíu, setjið einnig paprikuduft og chilli flögur saman við, steikið rólega í 5 mín. Setjið þá restina saman við og látið sjóða í c.a 20 mín eða þar til sósan er orðinn fallega þykk. Sigtið sósuna og kælið.
Bestu nauta grillsteikur sem til eru
Látið kjötið ná stofuhita áður en það fer út á grillið. Ef fiturönd er á kjötinu er gott að skera í fituna áður en það fer á grillið. Pennslið kjötið vel með olíu áður en það fer á teinana.
Ef eldur kemur undan kjötinu þar sem það getur verið og feitt er gott að draga kjötið til hliðar frá eldinum. Þegar kjötið hefur grillaðst vel er það sett á efri hillu á kaldari hlutann. Hitastigð á steikinni á ekki fara mikið yfir 52-54° því það mun hækka um tvær til fimm gráður eftir að kjötið er tekið af grillinu. Til að ná sem bestum árangri í að steikja nautakjöt þarf að nota kjöthitamæli, ofeldað nautakjöt er ekki gott. Þegar kjötið er tekið af grillinu þarf það að standa í c.a 5-10 mín.
- Sætar Kartöflur
- Langar paprikur
- Púrrulaukur
- Og fleira ef þið viljið
Skerið kartöflurnar niður í bita ásamt púrrulauknum. Setjið í eldfast mót með olíu ásamt paprikunni,
Grillið grænmetið og setjið aftur í eldfasta mótið og setjið á kaldari hlutann á grillinu.
- Bearnes sósa
- 3 stk eggjarauður
- 250-300g smjör
- 1 tsk estragon
- 1 tsk kjötkrafur
- 1 tsk bearnes essens
- Salt og pipar
Þeyta upp rauður með rafmagnspískaranum og vera búinn að bræða smjörið. Smjörið sett saman við rólega og kryddað svo í restina. Borið fram með steikunum.
