Þáttur 2. Fimmtudagurinn 23.06.2011

23. júní 2011

BBQ rif

Rifin sjálf má forelda á þrjá vegu, hægt er að sjóða þau í c.a  40 mín áður en þau fara á grillið. Elda þau í ofni við 100° í c.a 2 ½ tíma. Einnig er hægt að grilla þau á efri grind á lágum hita í c.a 70-80 mín áður en sósan fer á rifin, sem ég ætla að gera núna. 

Setja rifin á efri hillu á grillinu,  og lagið sósuna.
 
Sósa 
  • 2 dl tómatsósa
  • 200g púðursykur
  • 3 stk hvítlaukusrif
  • 4 msk teriyaki sósa
  • 3 msk chillisósa
  • Meira Chilli ef þið viljið, t.d tabasco eða ferskan chilli.
Þegar kjötið er tilbúið eftir c.a 70 mín er það tekið af grillinu og sósunni pennslað á rifin, setjið á grillið og grillið í c.a 15 mín eða þar til fallegur litur er kominn á sósuna á kjötinu. Gott er að pennsla aftur þegat tíminn er hálfnaður.
 

Spínat salat

  • c.a 50g pekanhnetur
  • 1 msk sykur
  • 1 poki  spínat
  • c.a 7stk jarðaber
  • c.a 20-30 stk bláber
  • balsamic glaze
hitið pekanhneturnar á þurri pönnu, þegar þær eru aðeins farnar að taka lit er sykur blandað saman við. Takið af hitanum og hrærið sykurinn vel saman við hneturnar, kælið. Setjið spínatið á fallegan disk, skerið jarðaberin niður og setjið yfir ásamt bláberjum. Saxið hneturnar niður og stráið yfir, sprautið þá balsamici yfir og berið fram með rifjunum.
 
 

Kjúklingaleggir og vængir

 
1 dós    passata tómatar 500g
1 dl teriyakesósa
1 msk hunang
2 stk hvítlauksgeirar
¼ tsk kanill
¼ tsk negull
1tsk Tabasco  (eftir smekk)
2 stk stjörnuanis
 
Allt sett saman í matarvinnsluvél og maukað vel saman, hellið leginum yfir kjúklinginn og látið standa í c.a 3 klst eða yfir nótt. 
Grillið kjúklinginn og pennslið tvisvar með afganginum af leginum yfir bitana. Setjið á efri hilluna og pennslið í síðasta sinn og klárið að elda.
 
Einn poki af snakki
Gráðostur í bitum
Tabasco sósa
Rifinn ostur
 
Snakkið er sett í eldfast mót, gráðostinum er blandað saman við og dass af tabaskó sósunni. Rifni osturinn er svo settur yfir. Setjið á grillið, ekki með hita undir og eldið þar til osturinn er bráðinn.
 

Sósu dipp

  • 1 dós sýrður rjómi
  • 3 msk grískt jógúrt
  • 100g gráðostur
  • 1 msk hunang
  • Salt og pipar
Öllu er blandað vel saman. Og borið fram með kjúklingnum og snakkinu
 

Rósmarin kryddaður lambahryggur

 
  • 1.stk lambahryggur
  • Ólífuolía
  • ferskt rósmarin
  • hvítlaukur
  • Salt og pipar
 
Skerið fitu endana  af hryggnum og snyrtið vel. Skerið niður með kjötinu  sitthvoru megin við hryggjarsúluna skerið rákir í fituna ofaná filleinu. (fiskimunstur)
Rífið rósmarin gróflega niður og saxið hvítaukinn gróflega niður.  Setjið kjötið í fat og nuddið olíunni í kjötið og kryddið með salt, pipar, hvítlauk og rósmarin og látið standa í smá stund. 
 

Kartöflur

  • 3 skt litlar kartöflur
  • ½ stk shalottulaukur
  • Ferskt timjan
  • Salt 
  • Ólífuolía
 
Skerið djúpan kross í kartöflurnar, setjið þær í álapappír og kryddið vel með salti. Setjið c.a 1 msk af olíu og eina góða grein af timjan á kartöflurnar.  Lokið bögglinum vel.
 
Setjið böggulinn  á  grillið í c.a 30 mín. Opnið þá böggulinn og athugið með hvort þær séu tilbúnar, grillið áfran ef svo er ekki með böggulinn opinn. 
 
Grillið kjötið við háan hita til að byrja með, fyrst á fitunni og snúið svo við þegar fitan er vel grilluð. Passið að það getur komið mikill eldur af fitunni á kjötinu þannig að það þarf að færa kjötið frá eldinum eins og kostur er. Setjið kjötið á efri hæð og lækkið hitann. Eldið kjötið upp í c.a 57°-60°  það gæti tekið c.a 20 mín á efri hillu við meðal hita. Látið kjötið standa á borði í c.a 5 mín áður en það er skorið niður.  
 

Fetaost blanda

  • 1 stk  Paprika 
  • 2-3msk  ólífuolía
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • Hnefi af steinselju
  • 1 krukka fetaostur í kryddolíu
  • Salt og pipar
 
Paprikan er grilluð við háan hita með kjötinu. Setjið á efri hillu og eldið áfram. Blandið saman olíu sítrónusafa og steinselju. Myljið ostinn saman við og kryddið með salt og pipar. Skerið paprikun niður í þunnar ræmur og blandið saman við. 
Berið fram með kjötinu
 

Piparsósa

  • 1 dós  sýrður rjómi
  • 3 msk grískt jógúrt
  • 1 msk hunang
  • 1 askja piparostur 85g
  • Salt og pipar
  • Blandið öllu vel saman og látið standa í c.a 1 klst. Berið svo fram með kjötinu.