6. þáttur fimmtudagurinn 21.07 2011
21. júlí 2011
Heilgrillaður kjúklingur
1 stk kjúklingur
50g mjúkt smjör
50ml olía
3 stk hvítlauksgeirar
1 msk rósmarin saxað
Safi úr einni sítrónu
Salt og pipar
Rósmarin greinar bundnar saman í pennsil
Pressið hvítlkaukinn og blandið saman við smjör, sítrónusafa, rósmarin og olíu. Gerið smá gat til að komast undir skinnið á kjúklingnum. Setjið c.a helminginn af smjörblöndunni undir skinnið. Setjið kjúklinginn ofan á bjórdós sem er hálfur af bjór, setjið í eldfast mót. Pennslið með rósmarin kjúklinginn öðru hverju á meðan eldun fer fram. Tekur c.a 60-70mín.
1 stk grillaður portobello sveppur á mann, pennslið með hvítlauksmjörinu af kjúklingnum.
sósa
2 msk Sýrður rjómi
4 msk Majones
1 msk Sætt sinep
2 msk Dijon sinep
1 msk Sítrónusafi
1 tsk hunang
Salt og pipar
Blandið öllu saman og látið standa
Kartöflusalat
400g soðnar kartöflur
1 krukka fetaostur í kryddi
1 tsk hvítlaukssalt
2 msk sólþurkað tómatmauk
3 msk Steinselja
5 msk Ristaðar furuhnetur
Skerið kartöflurnar niður í báta og blandið svo öllu saman.
Nauta vefjur
Tortíur
75g hveiti
180g heilhveiti
1 tsk salt
1 msk smjör
145ml vatn
Vinnið deigið rólega saman í c.a 3-4 mín. Setjið á borðið og látið standa í c.a 20 mín.
Skerið deigið niður í c.a 6 kúlur og fletjið út mjög þunnt. Bakið á heitu grillinu, passið að baka mjög lítið, tekur c.a 10 sekúndur á hvorri hlið
Ribaeye Nautasteik
Salt og pipar
Steikin er krydduð með salt og pipar. Grillið við háan hita á báðum hliðum, takið svo af grillinu og látið standa við stofuhita. Passið að grilla ekki of mikið
Avacado salsa
1 stk avacado mjúkur
2 msk sýrður rjómi
1 atk hvítlaukur
1 stk tómatur
Salt og pipar
Skerið avacado niður í bita og blandið saman við sýrða rjóman, stappið þessu saman með gafli. Setjið þá smátt saxaðan hvítlaukinn saman við og skerið tómatinn niður í bita, blandið svo saman og kryddið með salt og pipar.
Laukur
Paprika
Tómatar
Gúrka
Rifinn ostur
Sýrður rjómi 18%
Taco Chilli sósa
Skerið laukinn, paprikuna, agúrkuna og tómatana niður í frekar þunnar ræmur og setjið á disk. Skerið kjötið niður í þunnar sneiðar. Setjið svo allt saman inní pönnukökuna eins og þið viljið hafa það og borðið með höndunum.
Hamborgari
Borgarinn sjálfur 170gr. Hann er sérgataður svo betra sé að grilla (elda) hann.
Salt og pipar
Grillaður portobello sveppur m/hvítlauks olíu
beikonsneiðar
Ostur í sneiðum
Tómatar, gúrka, laukur og kál
Heimalöguð Bbq sósa
Franskar í dós
Einn stór bjór með
Byrjið á því að smyrja hvítlauksolíu á sveppinn og setjið hann á grillið ásamt beikoni. Fulleldið sveppinn og beikonið og setjið á efri hillu áður en kjötið fer á grillið. Pennslið kjötið vel með olíu og setjið á grilið, kryddið með salt og pipar. Passið að steikja borgarann ekki of mikið, setjið ostasneið yfir kjötið rétt áður en það er tilbúið. Raðið svo öllu upp í einn STÓRANN hamborgara.
