KÖKUR OG KRÆSINGAR FYRIR JÓLIN - 3 þáttur

15. desember 2011

 

LANGUR DAGUR Í ELDHÚSINU 

 


Súpubrauð (focaccia)
 

  • 520 gr. Hveiti
  • 11,8 gr.Þurger
  • 10 gr. Salt
  • 50 gr. Ólífuolía
  • 320 ml. Vatn
  • Rósmarin
  • Maltonsalt
  • ólífuolía
Setjið allt saman í skál og vinnið rólega saman með krók í c.a 3 mín. Vinnið svo saman í öðrum gír í c.a 6 mín. Sláið deiginu uppí kúlu og látið hefast í c.a 45 mín. Sláið þá deigið niður og setjið í tvö 22 c.m form með olíu undir. Látið deigið hefast í c.a 30 mín, pikkið þá í deigið með höndunum og setjið ólífuolíu yfir ásamt rósmarin og salti. Setjið deigið inní 250°heitann ofninn og bakið við 230° í c.a 22 mín.
 
 

Sveppasúpa

 
  • 50 gr. Smjör
  • 500 gr. Sveppir
  • 15 gr. Sillisveppir 
  • 1-2 msk.Koníak 
  • 50 gr. Hveiti
  • 5 dl. Kjúklingasoð
  • 3 dl. Rjómi
  • 2 dl. Matreyðslurjómi
  • 1 msk. Sítrónusafi
  • Salt og pipar
  • Steinselja 
  • Þeyttur rjómi
 
Byrjið á því að leggja villisveppina í bleyti í c.a 10 mín. Skerið sveppina niður og steikið uppúr smjöri, blandið koníakinu saman við og fáið suðuna upp, blandið hveitinu saman við og hrærið, blandið þá soðinu saman við og hrærið þar til kekkjalaust. Setjið þá rjómann og matreyðslurjómann saman við ásamt sítrónusafa og kryddið með salt og pipar. Látið sjóða við vægan hita í c.a 3-5 mín. 
Setjið súpuna í skál, setjið 1 msk af þeyttum rjóma ásamt saxaðri steinselju yfir.
 
 

Svínasteik

 
  • c.a 2 kg. svínasteik
  • 5 stk. Hvítlauksgeirar
  • 1 stk. Rautt chilli, fræhreinsað
  • 1 stk. Appelsína 
  • 1 stk. Sítróna
  • 1 msk. Salt
  • 1 tsk. Pipar
  • 1/2 tsk. Cummin fræ steitt
  • 1/2 tsk. Kóriander fræ steitt
 
Í ofnskúffuna
  • 1 stk. Laukur
  • 1 stk. Gulrót
  • 1 stk. Sellerístöngull
  • 5 stk. Negulnaglar
  • 3 stk. Lárviðarlauf
 
Skerið í fituna á steikinni. Setjið cummin fræin og kóriander fræin í mortel og merjið, setjið þá hvítlaukinn og chilli, rífið börkinn af appelsínunni og sítrónunni með mjög smáu rifjárni, blandið svo öllu kryddinu saman. Kreystið safann úr heillri appelsínu og úr hálfri sítrónu og blandið vel saman við kryddin. Smyrjið tæplega helmingnum af kryddinu á kjöthliðina. Setjið vatn í ofnskúffu, saxið grænmetið gróft sem á að fara í ofnskúffuna og leggið i vatnið ásamt negulnöglum og lárviðarlaufum. Leggið kjötið með fituna niður ofan á grindina, setjið inní 100° heitann ofninn og eldið í tvær klst. Takið þá kjötið út og snúið því við, smyrjið restinni af leginum yfir kjötið ásamt vel af salti. Hækkið ofninn í 230-250°,  setjið þá kjötið inní ofninn og eldið í c.a 20-25 mín eða þar til paran á steikinni er orðinn fallega brún og stökk, gott er að setja grillið á síðustu mínúturnar til að fá fallega puru passið að brenna ekki fituna. Takið þá kjötið út og látið standa í c.a 10 mín áður en steikin er skorin. 
 
 

Sósa
 

  • Soð úr skúffu c.a 1/2 l.
  • 1/2 l. Rjómi
  • 1 tsk. Rifsberjahlaup
  • 2 msk. Sherry (má sleppa)
  • Sósujafnari
  • Salt og pipar
  • Svínakraftur
Setjið soðið í pott og náið suðunni upp, fleytið mestu fitunni sem myndast ofan á soðinu og fjarlægið. setjið rjómann og rifsberjahlaupið (og sherry) saman við og sjóðið í c.a 5 mín við vægan hita. Kryddið til með salt og pipar, þykkið í restina með sósujafnara. Ef þið viljið fá meiri kraft í sósuna er gott að bæta við einni matskeið af svínakrafti.
 
 

Rauðkál með kanilstöng og appelsínuberki

 
  • 1 stk. Meðalstór rauðkálshaus
  • 2 msk. Smjör
  • 1 stk. Epli
  • 200 gr. Sykur
  • 1 tsk. Salt
  • 1 dl. Sólberjasaft
  • 2 dl. Rauðvínsedik
  • 2 dl. Vatn
  • 1 msk. Rifsbeja sulta
  • Rifinn börkur af c.a einni appelsínu
  • 1 stk. Kanelstöng
 
Skerið rauðkálið niður og steikið létt uppúr smjöri. Flysjið eplið og kjarnhreinsið saxið eplið smátt niður og setjið saman við rauðkálið ásamt restinni af innihaldinu. Sjóðið rólega í c.a eina og hálfa klukkustund.
 
Brúnaðar kartöflur eru bornar fram með steikinni.
 


Epla sandkaka

 
  • 200 gr. Smjör
  • 150 gr. Sykur
  • 4 stk. Eggjarauður
  • 50 gr.  Sykur
  • 4 stk. Eggjahvítur
  • 180 gr. Hveiti
  • 20 gr. Kartöflumjöl
 

Epli- sykur og kanill

 
Smjör og 150 gr. af sykri er unnið vel saman, eggjarauðurnar eru settar saman við ein í einu. Eggjahvíturnar eru þeyttar með 50 gr. af sykri. Þessu er svo blandað varlega saman, hveiti og kartöflumjöli er svo blandað  saman við og unnið rólega saman
 
Setjið deigið í lítil (muffins) form,  eplin eru skræld, þeim er svo raðað yfir kökuna, sykur og kanill er svo stráð létt yfir.
 
Bakað við 180° í c.a 22 mín.